Lýsing á Nice-flokki 1
Efni til nota í iðnaði, við vísindastörf og ljósmyndun sem og í landbúnaði, garðrækt og skógrækt; Óunnin gervikvoða, óunnar plastvörur; Slökkvi- og eldvarnarefni; Efnablöndur til herslu og lóðunar; Efni til sútunar á dýraskinnum og -húðum; Lím- og bindiefni til nota í iðnaði; Kítti og önnur fyllingarefni; Molta, áburður, gróðuráburður; Líffræðilegar efnablöndur til nota í iðnaði og vísindum
Lýsing á Nice-flokki 2
Málning, gljákvoða (fernis), lakk; Ryðvarnarefni og fúavarnarefni; Litarefni, litunarefni; Blek til prentunar, merkingar og fyrir leturgröft; Óunnin náttúruleg kvoða; Málmþynnur og málmduft til nota við málun, skreytingar, prentun og listsköpun
Lýsing á Nice-flokki 3
Ólyfjabættar fegrunar- og snyrtivörur; Ólyfjabættar tannhirðuvörur; Ilmvörur, ilmolíur; Bleiki-efni og önnur efni til að nota við fataþvott; Efni til að nota við ræstingu, fægingu, hreinsun og slípun
Lýsing á Nice-flokki 4
Olíur og feiti til iðnaðar, vax; Smurolíur; Raka- og rykbindiefni; Brennsluefni og ljósmeti; Kerti og kveikir til lýsingar
Lýsing á Nice-flokki 5
Lyf og lyfjablöndur til lækninga fyrir menn og dýr; Efnablöndur til hreinlætisnota í læknis-fræðilegum tilgangi; Sérfæði og næringarefni fyrir menn og dýr, barnamatur; Fæðubótarefni fyrir menn og dýr; Plástrar, sárabindi; Tannfyllingarefni, vax til tannsmíða; Sótthreinsiefni; Efni til að eyða meindýrum; Sveppaeyðir, illgresiseyðir
Lýsing á Nice-flokki 6
Ódýrir málmar og blöndur úr þeim, málmgrýti; Byggingar- og smíðaefni úr málmi; Færanlegar byggingar úr málmi; Strengir og vírar úr ódýrum málmum, ekki til rafmagnsnota; Smáhlutir úr málmi; Málmílát til geymslu eða flutninga; Öryggisskápar
Lýsing á Nice-flokki 7
Vélar, smíðavélar, orkuknúnar vélar; Hreyflar og vélar, þó ekki í landfarartæki; Vélatengsli og drifbúnaður, þó ekki í landfarartæki; Landbúnaðarvélar, aðrar en handknúin handverkfæri; Klakvélar (útungunarvélar); Sjálfsalar
Lýsing á Nice-flokki 8
Handverkfæri og handknúin tól; Hnífapör; Beltisvopn, þó ekki skotvopn; Rakvélar
Lýsing á Nice-flokki 9
Búnaður og tæki til notkunar við vísindi, rannsóknir, leiðsögu, landmælingar, ljósmyndun, kvikmyndatöku og -sýningar, hljóð- og myndmiðlun, ljósfræði, vigtun, mælingar, merkjasendingar, greiningar, prófanir, eftirlit, björgun og kennslu; Búnaður og tæki til að leiða, kveikja og slökkva á, breyta, safna, stilla eða stjórna dreifingu eða notkun á rafmagni; Búnaður og tæki til að taka upp, miðla, afrita eða vinna hljóð, myndefni eða gögn; Upptekið og niðurhalanlegt efni, tölvuhugbúnaður, auðir, stafrænir eða hliðrænir gagnamiðlar til upptöku og geymslu; Vélbúnaður fyrir myntstýrð tæki; Búðarkassar, reiknivélar; Tölvur og tölvujaðartæki; Köfunarbúningar, köfunargrímur, eyrnatappar fyrir kafara, nefklemmur fyrir kafara og sundfólk, hanskar fyrir kafara, öndunarbúnaður fyrir kafsund; Slökkvitæki
Lýsing á Nice-flokki 10
Tæki og búnaður til skurðlækninga, lyflækninga, tannlækninga og dýralækninga; Gervilimir, -augu og -tennur; Hlutir til bæklunarlækninga; Þráður til að sauma saman sár; Lækninga- og hjálpartæki ætluð fötluðum einstaklingum; Nuddtæki; Búnaður, tæki og hlutir til umönnunar ungbarna; Búnaður, tæki og hlutir til kynlífsathafna
Lýsing á Nice-flokki 11
Tæki og búnaður fyrir lýsingu, hitun, kælingu, gufuframleiðslu, matseld, þurrkun, loftræstingu, vatnsveitu og hreinlæti
Lýsing á Nice-flokki 12
Farartæki; Tæki til flutninga á landi, í lofti eða á legi
Lýsing á Nice-flokki 13
Skotvopn; Skotfæri og skot; Sprengiefni; Flugeldar
Lýsing á Nice-flokki 14
Góðmálmar og blöndur úr þeim; Skartgripir, eðalsteinar og hálfeðalsteinar; Klukkur og tæki til tímamælinga
Lýsing á Nice-flokki 15
Hljóðfæri; Nótnastatíf og hljóðfærastandar; Tónsprotar fyrir hljómsveitarstjóra
Lýsing á Nice-flokki 16
Pappír og pappi; Prentað mál; Bókbandsefni; Ljósmyndir; Ritföng og skrifstofuvörur, þó ekki húsgögn; Bréflím og lím til heimilisnota; Teiknivörur og vörur fyrir listamenn; Málningarpenslar; Fræðslu- og kennslugögn; Plastþynnur, -filmur og –pokar til umbúða og pökkunar; Leturstafir, myndmót
Lýsing á Nice-flokki 17
Óunnið og hálfunnið gúmmí, togleður (gúttaperka), gúmkvoða, asbest, gljásteinn og efni sem komið geta í staðinn fyrir þau; Hálfunnið þanið plast og kvoða til iðnaðarnota; Efni til hvers konar þéttingar eða einangrunar; Sveigjanlegar pípur, rör og slöngur sem ekki eru úr málmi
Lýsing á Nice-flokki 18
Leður og leðurlíki; Skinn og húðir dýra; Farangurs- og handtöskur; Regnhlífar og sólhlífar; Göngustafir; Svipur, aktygi og reiðtygi; Hálsólar, taumar og fatnaður fyrir dýr
Lýsing á Nice-flokki 19
Efniviður, ekki úr málmi, til bygginga og mannvirkjagerðar; Ósveigjanlegar pípur í byggingar, ekki úr málmi; Asfalt, bik, tjara og malbik; Færanlegar byggingar, ekki úr málmi; Minnisvarðar, ekki úr málmi
Lýsing á Nice-flokki 20
Húsgögn, speglar, myndarammar; Ílát, ekki úr málmi, til geymslu eða flutninga; Óunnin eða hálfunnin bein, horn, hvalabein eða perlumóðir; Skeljar; Sæfrauð; Raf
Lýsing á Nice-flokki 21
Heimilis- eða eldhúsáhöld og ílát; Eldhús- og borðbúnaður, nema gafflar, hnífar og skeiðar; Greiður og svampar; Burstar, nema málningarpenslar; Efni til burstagerðar; Hlutir sem notaðir eru til ræstingar; Óunnið eða hálfunnið gler, þó ekki gler í byggingar; Glervörur, postulín og leirvörur
Lýsing á Nice-flokki 22
Kaðlar og seglgarn; Net; Tjöld og yfirbreiðslur; Ofnir segldúkar eða úr gerviefnum; Segl; Sekkir til flutninga og geymslu efna í lausri vigt; Bólstrunar-, fylliefni og tróð, nema úr pappír, pappa, gúmmíi eða plasti; Óunnin efni úr þræði til vefnaðar og efni sem komið geta í stað þeirra
Lýsing á Nice-flokki 23
Garn og þráður til vefnaðar
Lýsing á Nice-flokki 24
Vefnaður og efni sem komið geta í staðinn fyrir vefnað; Ín til heimilisnota; Ofin gluggatjöld eða úr plasti
Lýsing á Nice-flokki 25
Fatnaður, skófatnaður, höfuðfatnaður
Lýsing á Nice-flokki 26
Blúndur, fléttuborðar og útsaumur og ofnir borðar og slaufur; Hnappar og tölur, krókar og lykkjur, prjónar og nálar; Gerviblóm; Hárskraut; Gervihár
Lýsing á Nice-flokki 27
Teppi, mottur, gólfdúkar og annað efni til að leggja á gólf; Veggklæðningar, ekki ofnar
Lýsing á Nice-flokki 28
Leikspil, leikföng og hlutir til leikja; Skjáleikjabúnaður; Leikfimi- og íþróttavörur; Jólatrésskraut
Lýsing á Nice-flokki 29
Kjöt, fiskur, alifuglar og villibráð; Kjötkraftur; Niðursoðnir, frosnir, þurrkaðir og soðnir ávextir og grænmeti; Ávaxtahlaup, -sultur og -grautar; Egg; Mjólk, ostur, smjör, jógúrt og aðrar mjólkurafurðir; Olíur og feiti til matar
Lýsing á Nice-flokki 30
Kaffi, te, kakó og gervikaffi; Hrísgrjón, pasta og núðlur; Tapíókamjöl og sagógrjón; Mjöl og matvörur úr korni; Brauð, sætabrauð og sælgæti; Súkkulaði; Ís, frauðís og annar ís til matar; Sykur, hunang, síróp; Ger, lyftiduft; Salt, kryddblöndur, krydd, rotvarðar jurtir; Edik, sósur og aðrir bragðbætar; Ís (frosið vatn)
Lýsing á Nice-flokki 31
Hráar og óunnar landbúnaðar-, lagareldis-, garðræktar- og skógræktarafurðir; Hrátt og óunnið korn og fræ; Ferskir ávextir og grænmeti; Ferskar kryddjurtir; Lifandi plöntur og blóm; Blóm-laukar, kímplöntur og fræ til gróðursetningar; Lifandi dýr; Dýrafóður og drykkjavörur ætlaðar dýrum
Lýsing á Nice-flokki 32
Bjór; Óáfengir drykkir; Ölkelduvatn, gosdrykkir; Ávaxtadrykkir og ávaxtasafar; Þykkni og önnur óáfeng efni til drykkjargerðar
Lýsing á Nice-flokki 33
Áfengir drykkir nema bjór; Áfeng efni til drykkjargerðar
Lýsing á Nice-flokki 34
Tóbak og tóbakslíki; Sígarettur og vindlar; Rafrettur (veipur) og innúðatæki fyrir reykingafólk; Hlutir fyrir reykingafólk; Eldspýtur
Lýsing á Nice-flokki 35
Auglýsingastarfsemi; Skrifstofustarfsemi
Lýsing á Nice-flokki 36
Mannvirkjagerð; Uppsetninga- og viðgerðarþjónusta; Námuvinnsla, olíu- og gasborun
Lýsing á Nice-flokki 38
Flutningar; Pökkun og geymsla vöru; Ferðaþjónusta
Lýsing á Nice-flokki 39
Meðferð efna; Endurvinnsla úrgangs og sorps; Lofthreinsun og meðhöndlun vatns; Prentþjónusta; Varðveisla matar og drykkjar
Lýsing á Nice-flokki 40
Fræðsla; Þjálfun; Skemmtistarfsemi; Íþrótta- og menningarstarfsemi
Lýsing á Nice-flokki 41
Vísinda- og tækniþjónusta og rannsóknir og hönnun í tengslum við það; Rannsóknar-, greiningar- og hönnunarþjónusta á sviði iðnaðar; Gæðaeftirlit og sannvottunarþjónusta; Hönnun og þróun tölvubúnaðar og tölvuhugbúnaðar
Lýsing á Nice-flokki 42
Veitingaþjónusta; Tímabundin gistiþjónusta
Lýsing á Nice-flokki 43
Læknisþjónusta; Dýralæknisþjónusta; Fegrunar- og snyrtiþjónusta fyrir menn eða dýr; Þjónusta við landbúnað, lagareldi, garðyrkju og skógrækt
Lýsing á Nice-flokki 44
Lögfræðiþjónusta; Öryggisþjónusta til líkamlegrar verndar einstaklingum og til verndar áþreifanlegum eignum